Hector Bellerin er ánægður í herbúðum Arsenal og ekkert félag hefur verið að sýna honum áhuga.
Þetta segir umboðsmaður Bellerin en hann hefur verið orðaður við Juventus og Manchester United.
Bellerin gæti þó farið ef Arsenal mistekst að komast í Meistaradeildina.
,,Það hefur ekkert félag haft samband við mig,“ sagði Alberto Botines umboðsmaður Bellerin.
,,Hann er sáttur, hann gerði nýverið nýjan samning og spilar reglulega. Það er erfitt að sjá hann fara strax.“