Jerome Boateng, varnarmaður Bayern Munich gæti yfirgefið þýska félagið í sumar en það er Mail sem greinir frá þessu.
Þessi 29 ára gamli miðvörður er metinn á 50 milljónir punda en Manchester City hefur mikinn áhuga á honum.
Pep Guardiola, stjóri liðsins þekkir Boateng vel en þeir unnu saman hjá Bayern í þrjú ár.
Manchester City er ekki eina liðið sem hefur áhuga á honum því Manchester United hefur einnig mikinn áhuga á leikmanninum.
Jose Mourinho, stjóri liðsins vill fá Boateng til þess að leysa varnarvandræði félagsins en hann er af mörgum talinn einn besti varnarmaðurinn í heiminum í dag.