Manchester United ætlar sér að leggja fram tilboð í Raphael Varane, varnarmann Real Madrid í sumar en það er Mirror sem greinir frá þessu.
Jose Mourinho, stjóri United vill fá miðvörð til þess að spila með Eric Bailly í sumar en hann er ekki sáttur með núverandi miðverði sína.
Portúgalinn hefur lengi verið aðdáandi Varane en hann fékk hann til Real Madrid á sínum tíma.
Varane er af mörgum talinn einn allra efnilegasti miðvörðurinn í heiminum í dag en hann er einungis 24 ára gamall.
Mirror greinir frá því að Real Madrid sé tilbúið að selja leikmenninn fyrir 50 milljónir punda og það er upphæð sem United ætti að ráða við.