Roma íhugar nú að leggja fram tilboð í Riyad Mahrez, sóknarmann Leicester en það er Mirror sem greinir frá þessu í dag.
Leikmaðurinn var nálægt því að ganga til liðs við ítalska félagið, síðasta sumar en félagaskiptin gengu ekki í gegn.
Þá lagði Manchester City fram nokkur tilboð í leikmanninn í janúar en Leicester hafnaði þeim öllum.
Það verður að teljast líklegt að Mahrez yfirgefi Leicester í sumar en hann hefur viljað yfirgefa félagið, undanfarin tvö ár.
Roma er tilbúið að láta leikmenn í skiptum fyrir Mahrez, sem og pening á milli en þeir voru ekki tilbúnir að borga uppsett verð fyrir hann, síðasta sumar.