Paul Pogba, miðjumaður Manchester United er að ganga í gegnum erfiða tíma þessa dagana.
Hann hefur nú misst byrjunarliðssæti sitt í liði United og þá hefur Jose Mourinho, stjóri liðsins verið duglegur að kippa honum af velli, þegar að hann hefur fengið tækfifæri í byrjunarliðinu.
Pogba kom til félagsins síðasta sumar en hann er nú orðaður við brottför frá félaginu þessa dagana.
„Ég elska Neymar, ekki bara á vellinum heldur líka í persónu,“ sagði Pogba.
„Við munum spila saman einn daginn. Mig hefur dreymt um það áður og ég er handviss um að það gerist einn daginn. Hann er alltaf glaður á vellinum, hann nýtur þess að spila leikinn.“
„Hann er brasilískur og þar elska þeir fótboltann meira en allt. Það spila allir fótbolta þarna og það sést þegar hann spilar leikinn hversu mikið hann elskar fótboltann,“ sagði Pogba að lokum.