Jose Mourinho stjóri Manchester United hefur ekki hugmynd um það hvort Marouane Fellaini fari frá félaginu í sumar eða ekki.
Samningur hans við félagið er á enda í sumar og stefnir margt í það að hann fari frítt.
Fellaini hefur í tvígang hafnað nýjum samningi og ekki stefnir í að hann kroti undir.
,,Ég veit ekki hvort hann fari eða verði áfram, ég vil halda honum,“ sagði Jose Mourinho stjóri Manchester United.
,,Félagið vill halda honum, hvernig gengur, laun, hversu langt aðilar eru frá hvor öðrum. Það veit ég ekki.“