Benjamin Mendy bakvörður Manchester City er ekki ánægður með félagið sitt í dag.
Hann segir félagið hafa skáldað ummæli sín um endurkomu sína. Mendy sleit krossband í upphafi leiktíðar.
Haft er eftir Mendy á heimasíðu City að hann stefni á að snúa aftur í apríl. Hann man ekki eftir slíku viðtali.
,,Ekki viss hvar eða hvenær ég sagði þessa hluti,“ segir Mendy á Twitter.
,,Róið ykkur, þetta mun taka eins mikinn tíma og ég þarf, þangað til að ég verð 100 prósent.“