Leikmenn Manchester United voru mjög hissa á því hvernig Jose Mourinho gekk fram gegn Luke Shaw bakverði félagsins á laugardag.
Shaw var tekinn af vell í hálfleik gegn Brighton í bikarnum um helgina.
Eftir leik var svo Mourinho mættur og drullaði yfir bakvörðinn.
Varnarleikur United er hins vegar í blóma með Shaw á vellinum, liðið hefur ekki fengið á sig mark í 751 mínútu með hann innan vallar.
Bakvörðurinn er líklegur til þess að fara frá United í sumar en Mourinho tekur hann reglulega fyrir.
Manchester United haven't conceded a goal in Luke Shaw's last 751 minutes on the pitch #mufc
— Josh Wright (@_WrightJosh) March 19, 2018