Darron Gibson, fyrrum leikmaður Manchester United lenti í slæmu umferðaróhappi um helgina.
Gibson spilar í dag með Sunderland á Englandi en hann hefur ekki komið við sögu hjá liðinu síðan í desember á síðasta ári.
Hann er sakaður um að keyra fullur og hefur verið settur í bann hjá Sunderland.
Hann er að jafna sig á meiðslum en ætti að vera orðinn klár í slaginn í apríl en lítið sem ekkert gengur hjá Sunderland þessa dagana.
Myndir af árekstrinum má sjá hér fyrir neðan.