Leicester City tók á móti Chelsea í 8-liða úrslitum FA-bikarsins í dag en leiknum lauk með 2-1 sigri gestanna.
Það var Alvaro Morata sem kom Chelsea yfir á 42. mínútu og staðan því 1-0 í hálfleik.
Jamie Vardy jafnaði hins vegar metin fyrir heimamenn á 76. mínútu og því var gripið til framlengingar.
Þar voru það gestirnir sem höfðu betur og tryggði Pedro Rodriguez sínum mönnum sigur og lokatölur því 2-1 fyrir Chelsea sem er áfram í undanúrslitin en Leicester er úr leik.