Swansea tekur á móti Tottenham í 8-liða úrslitum enska FA-bikarsins í dag klukkan 12:15 og eru byrjunarliðin klár.
Heimamenn hafa aðeins verið að spýta í lófana í undanförnum leikjum og sitja sem stendur í fjórtánda sæti deildarinnar með 31 stig, fjórum stigum frá fallsæti.
Tottenham er í þriðja sæti deildarinnar með 61 stig, fjórum stigum minna en Manchester United sem er á toppi deildarinnar.
Byrjunarliðin má sjá hér fyrir neðan.
Swansea: Nordfeldt, Naughton, Van der Hoorn, Bartley, Mawson, Olsson, Ki Sung-Yueng, Carroll, Clucas, Dyer, Abraham.
Tottenham: Vorm, Trippier, Sánchez, Vertonghen, Davies, Dier, Sissoko, Lamela, Eriksen, Lucas, Son.