Bolton tók á móti Aston Villa í ensku Championsip deildinni í dag en leiknum lauk með 1-0 sigri heimamanna.
Það var Adam Le Fondre sem skoraði eina mark leiksins á 19. mínútu og lokatölur því 1-0 fyrir Bolton.
Birkir Bjarnason var í byrjunarliði Villa í dag og spilaði allan leikinn sem afturliggjandi miðjumaður.
Aston Villa er í fjórða sæti deildarinnar með 69 stig, 7 stigum á eftir Cardiff sem er í öðru sætinu.