Jurgen Klopp er ekki sáttur með ensku úrvalsdeildina og að færa leik liðsins við Everton.
Klopp og félagar mæta Manchester City í Meistaradeildinni og á milli leikja er leikur við Everton.
Hann hefur nú verið færður í hádegið á laugardeginum 7 apríl.
,,Ég er mjög reiður eftir að hafa heyrt af þessari breytingu,“ sagði Klopp.
,,Ég veit að í öðrum löndum er leikjum frestað, við spilum á miðvikudegi og svo í hádegi á laugardag gegn Everton. Það er ekki gott.“