KSÍ og Errea voru rétt í þessu að kynna nýjan landsliðsbúning sinn á Laugardalsvelli.
Líkt og síðustu ár er það Errea sem framleiðir búninginn fyrir KSÍ.
Búningurinn verður í eldlínunni í sumar þegar karlalandsliðið fer á HM í Rússlandi.
Búningurinn mun án nokkurs vafa vekja mikla athygli en fyrstu myndirnar af honum eru hér að neðan.
🇮🇸 The new kit is here 🇮🇸#fyririsland #TeamIceland pic.twitter.com/kFaq9mOrga
— Knattspyrnusambandið (@footballiceland) March 15, 2018