Leikmenn Manchester United höfðu planað að skella sér á Cheltenham veðreiðarnar í vikunni. Þær eru afar vinsælar.
United féll úr leik í Meistaradeildinni á þriðjudag en eftir tapið var hætt við að fara.
Leikmenn United töldu það ekki rétt að vera að gera sér glaðan dag eftir svona slæmt tap.
United féll úr leik gegn Sevilla á heimavelli á þriðjudag, tapið hefur sett pressu á Jose Mourinho stjóra liðsins.
Eini möguleiki United á titli á þessu tímabili er í enska bikarnum en liðið mætir Brighton í átta liða úrslitum um helgina.