Jose Mourinho stjóri Manchester United reyndi að verja sjálfan sig eftir tap gegn Sevilla í gær.
United er úr leik í Meistaradeildinni eftir 2-1 tap gegn Sevilla á heimavelli í gær.
Frammistaða United hefur verið harkalega gagnrýnd í mörgum leikjum í ár.
,,Ég hef áður setið í þessum stól og United er úr leik,“ sagði Mourinho sem reyndi að bjarga sjálfum sér.
,,Hér með Porto gegn United og svo með Real Madrid og United datt út. Þetta er ekkert nýtt fyrir þetta félag.“
Sir Alex Ferguson fyrrum stjóri United var í stúkunni og var ekki glaður með sína gömlu félaga.
Fergie's face says it all… 😡😡😡 #ComeBackFergie #MUFC pic.twitter.com/UYcBL3RYwu
— MSP2 (@MSPMSPMSP12345) March 14, 2018