Gylfi Þór Sigurðsson, leikmaður Everton og íslenska landsliðsins er mikið meiiddur og gæti misst af HM í sumar. Everton segir að Gylfi fari í rannsóknir í dag
Hjörvar Hafliðason sérfræðingur og útvarpsmaður á FM957 greindi frá þessu á FM957 í mörgun.
Gylfi lék allan leikinn í 2-0 sigri Everton um helgina gegn Brighton en meiddist hins vegar þar.
„Menn óttast að Gylfi sé farinn í sumarfrí. Það virðist hafa teygst eitthvað í hnénu, hvort það séu slitin liðbönd eða trosnuð þá virðist hann hafi lent í mjög alvarlegum hnémeiðslum“ sagði Hjörvar í Brennslunni.
„Það er óttast að hann missi af Rússlandi í sumar. Það eru allar líkur á því að hann verði frá í töluverðan tíma
Everton segir að Gylfi verði frá í nokkrar vikur en hversu margar vikurnar verða kemur í ljós í dag.
Ef Gylfi yrði ekki með er ljóst að Heimir Hallgrímsson þarf að finna lausnir.