Bournemouth 1 – 4 Tottenham
1-0 Junior Stanislas (7′)
1-1 Dele Alli (35′)
1-2 Heung-Min Son (62′)
1-3 Heung-Min Son (87′)
1-4 Serge Aurier (91′)
Bournemouth tók á móti Tottenham í ensku úrvalsdeildinni í dag en leiknum lauk með 4-1 sigri gestanna.
Heimamenn komust yfir strax á 7. mínútu en Dele Alli jafnaði metin fyrirTottenham á 35. mínútu og staðan því 1-1 í hálfleik.
Heung-Min Son bætti svo við tveimur mörkum til viðbótar í síðari hálfleik áður en Serge Aurier innsiglaði sigur Tottenham í uppbótartíma og lokatölur því 4-1 fyrir Tottenham.
Tottenham fer með sigrinum upp í þriðja sæti deildarinnar í 61 stig en Bournemouth er í tólfta sætinu með 33 stig.