West Ham tók á móti Burnley í ensku úrvalsdeildinni í dag en leiknum lauk með 3-0 sigri gestanna.
Það voru þeir Ashley Barnes og Chris Wood sem skoruðu mörk Burnley í dag en West Ham er nú í slæmum málum í sextánda sæti deildarinnar með 30 stig, þremur stigum frá fallsæti.
Stuðningsmenn West Ham eru allt annað en sáttir með stjórn félagsins og létu óánægju sína í ljós undir lok leiksins.
Þeir ruddust inn á völlinn og létu leikmenn liðsins heyra það og þurftu öryggisverðir að fjarlægja þá af vellinum.
Myndir af þessu má sjá hér fyrir neðan.