Fimm leikir fóru fram í ensku úrvalsdeildinni í dag og var þeim að ljúka núna rétt í þessu.
Gylfi Þór Sigurðsson spilaði allan leikinn í 2-0 sigri Everton á Brighton þar sem að Cenk Tosun skoraði svakalegt mark fyrir heimamenn.
Þá var Jóhann Berg Guðmundsson á sínum stað í byrjunarliði Burnley sem fór illa með West Ham, 3-0 en Jóhann spilaði allan leikinn á vinstri kantinum.
Newcastle vann svo afar mikivægan sigur á Southampton og þá átti Leicester í litlum vandræðum með botnlið WBA.
Úrslit og markaskorara má sjá hér fyrir neðan.
Everton 2 – 0 Brighton & Hove Albion
1-0 Gaetan Bong (sjálfsmark 60′)
2-0 Cenk Tosun (76′)
Huddersfield Town 0 – 0 Swansea City
Newcastle United 3 – 0 Southampton
1-0 Kenedy (2′)
2-0 Kenedy (29′)
3-0 Matt Ritchie (57′)
West Bromwich Albion 1 – 4 Leicester City
1-0 Salomon Rondon (8′)
1-1 Jamie Vardy (21′)
1-2 Riyad Mahrez (62′)
1-3 Kelechi Iheanacho (76′)
1-4 Vicente Iborra (90′)
West Ham United 0 – 3 Burnley
0-1 Ashley Barnes (66′)
0-2 Chris Wood (70′)
0-3 Chris Wood (81′)