Manchester City pakkaði Arsenal saman í annað sinn á nokkrum dögum þegar liðin mættust í ensku úrvalsdeildinni í kvöld.
Leikið var á Emirates vellinum en margir stuðningsmenn Arsenal ákváðu að sleppa því að mæta á leikinn.
Emirates völlurinn var því hálf tómur þegar City hlóð í þrjú mörk á 18 mínútum í fyrri hálfleik.
Bernardo Silva skoraði það fyrsta á 15 mínútu og síðan fylgdu mörk frá David Silva og Leroy Sane.
Pierre-Emerick Aubameyang fékk tækifæri til að laga stöðuna og búa til leik í síðari hálfleik en klikkaði á vítaspyrnu.
City er eftir sigurinn með 16 stiga forskot á Manchester United sem er í öðru sæti deildarinnar en Arsenal er tíu stigum frá Meistaradeildarsæti.