Saksóknari í máli á Spáni vill að Ander Herrera miðjumaður Manchester Untied verði dæmdur í fjögurra ára fangelsi.
Herrera miðjumaður United neitar því alfarið að hafa tekið þátt í að hagræða úrslitum.
Yfirvöld á Spáni telja að brögð hafi verið í tafli þegar Real Zaragoza og Levante mættust árið 2011.
Þá var Herrera leikmaður Real Zaragoza en 33 aðilar hafa verið kallaðir fyrir dóm.
Talið er að Zaragoza hafi greitt starfsmönnum Levante til að tapa leiknum, hagræðing á úrslitum er litin mjög alvarlegum augum.
Zaragoza varð að vinna leikinn til að geta haldið sér í La Liga.