Arsenal og Manchester City mættust í úrslitum enska Deildarbikarsins í dag en leiknum lauk með 3-0 sigri City.
Það voru þeir Sergio Aguero, Vincent Kompany og David Silva sem skoruðu mörk City í dag og lokatölur því 3-0 eins og áður sagði.
Pep Guardiola, stjóri City var að vonum sáttur með fyrsta titil liðsins undir sinni stjórn.
„Þetta var afar mikilvægt og ég er glaður. Ég verð óska stuðningsmönnunum til hamingju, þessi bikar er fyrir Manchester City, ekki mig,“ sagði Guardiola.
„Mér fannst við ekki nægilega góðir í fyrri hálfleik en við mættum til leiks í seinni hálfleik og vorum algjörlega frábærir.“
„Við stjórnuðum leiknum, þorðum að spila fótbolta og vorum hugrakkir. Ég er mjög ánægður í dag,“ sagði hann að lokum.