Leicester tók á móti Stoke City í hádegisleik ensku úrvalsdeildarinnar í dag en leiknum lauk með 1-1 jafntefli.
Það var Xherdan Shaqiri sem skoraði fyrsta mark leiksins á 43. mínútu og staðan því 1-0 í hálfleik.
Jack Butland skoraði hins vegar ansi klaufalegt sjálfsmark á 70. mínútu og niðurstaðan því 1-1 jafntefli.
Butland var talsvert gagnrýndur á Twitter eftir markið en hann gerði sig sekan um slæm mistök og einbeitingarleysi.