Willian, sóknarmaður Chelsea var í ítarlegu viðtali á dögunum þar sem hann ræddi m.a framtíð sína.
Leikmaðurinn hefur verið sterklega orðaður við Manchester United síðan að Jose Mourinho tók við liðinu árið 2016.
Chelsea mætir Barcelona í Meistaradeildinni á morgun og viðurkennir sóknarmaðurinn að það væri draumur að spila fyrir Börsunga, einn daginn.
„Real Madrid og Barcelona eru stærstu félagslið heims, þetta eru félögin sem allir þekkja,“ sagði Willian.
„Auðvitað eru fleiri mögnuð félög, eins og t.d Chelsea sem ég spila fyrir. PSG er líka risa stórt félag.“
„Þessi tvö, Real og Barca eru félögin sem alla leikmenn dreymir um að spila fyrir,“ sagði hann að lokum.