Aron Einar GUnnarsson miðjumaður Cardiff ætlar sér að fara frá félaginu ef liðið fer ekki upp í ensku úrvalsdeildina.
Aron er samningslaus í sumar og er að skoða sín mál.
Miðjumaðurinn er meiddur og gæti komið til baka á næstu vikum. Hann fór í aðgerð á ökkla og er að koma sér í gang.
Hann greindi frá því í Akraborginni á föstudag að hann myndi yfirgefa félagið ef Cardiff færi ekki upp í úrvalsdeildina.
Cardiff er í öðru sæti Championship deildarinnar og í fínum möguleika á að fara upp.
Viðtalið við Aron má heyra hér að neðan.