Huddersfield tók á móti Bournemouth í ensku úrvalsdeildinni í dag en leiknum lauk með 4-1 sigri heimamanna.
Það voru þeir Alex Pritchard, Steve Mounie og Rajiv van La Parra sem skoruðu mörk heimamanna í dag en Junior Stanislas jafnaði metin fyrir gestina í stöðunni 1-0.
Afar athyglisvert atvik átti sér stað á varamannabekk Huddersfield í dag þegar einn af varamönnum liðsins var að gera sig kláran til þess að koma inná.
Hann girti niðrum sig á bekknum og sást getnaðarlimur hans vel í beinni útsendingu en atvikið hefur vakið mikla kátínu á Twitter.
Myndband af atvikinu má sjá hér fyrir neðan.
What have I just witnessed #Huddersfield pic.twitter.com/wI8WvYkvXw
— Lauren Marley (@LaurenMarley_) February 11, 2018