Paul Pogba, miðjumaður Manchester United virðist fagna því að Jose Mourinho hafi verið rekinn frá félaginu.
Mourinho var rekinn frá félaginu í dag en hann og Pogba hafa ekki átt skap saman síðustu vikur.
Mourinho hafði skutlað Pogba á bekkinn en miðjumaðurinn vildi ekki lengur leggja sig fram fyrir Mourinho.
Pogba ákvað að skella sér á Twitter og virðist vera að fagna því að Mourinho hafi verið rekinn.
,,Settu fyrirsögn á þetta,“ skrifaði Pogba á Twitter og virðist færslan tengjast tíðindum dagsins.
Pogba er dýrasti leikmaður í sögu United en frammistaða hans í rauðu treyjunni hefur ekki verið góð.
Uppfært! Pogba hefur nú eytt þessari færslu
9.45am: Manchester United announce Jose Mourinho’s departure.
10.31am: pic.twitter.com/TapSLyXmwA
— Daniel Storey (@danielstorey85) December 18, 2018