Jesse Lingard leikmaður Manchester United hefur gefið út fatalínu og ákvað að fagna því í gær.
Fyrr um daginn var Lingard að árita og selja fötin, þar var fjölmennt af stuðningsmönnum Manchester United.
Lingard bauð svo vinum sínum í partý í gær þar sem stjörnurnar létu sjá sig.
Þar á meðal var Raheem Sterling leikmaður Manchester City sem var í stuði.
Þarna voru líka Paul Pogba, Romelu Lukaku og allar helstu stjörnur Manchester United.
Pogba virtist ekki sáttur með klæðaburð Luke Shaw og gerði grín að því hvernig hann væri.
Myndir af þessu eru hér að neðan.