Samkvæmt enskum blöðum vill West Ham krækja í Antonio Valencia bakvörð og fyrirliða Manchester United.
Samningur Valencia við United er á enda í sumar og ekki er víst að United vilji halda honum.
Jose Mourinho vill helst ekki spila Valencia þessa stundina.
Valencia kom til United árið 2009, þá var hann kantmaður en hefur á síðustu árum orðið bakvörður.
Valencia er frá Ekvador og hefur spilað yfir 300 leiki fyrir United. Sagt er að West Ham hefði áhuga á ða kaupa Valencia í janúar.