Liverpool er eitt sögufrægasta knattspyrnufélag í heimi og á stuðningsmenn út um allan heim.
Erfiðlega hefur hins vegar gengið hjá liðinu að ná að vinna deildina, eitthvað sem stuðningsmenn félagisns þrá.
Enska úrvalsdeildin hófst árið 1992 og síðan þá hefur Liverpool átt marga flotta búninga.
Adidas, Reebook og fleiri hafa séð um að framleiða þessar treyjur.
Hver er hins vegar sú flottasta? Gaman væri að fá þitt álit í ummæla kerfinu hér að neðan.