Það eru ekki alltaf jólin í fótboltanum og íslenska karlalandsliðið hefur fundið fyrir því á síðustu mánuðum.
Iðulega hefur vantað nokkra leikmenn undanfarið vegna meiðsla og það verður þannig gegn Belgíu og Katar í þessum mánuði.
Hólmar Örn Eyjólfsson er með slitið krossband og verður frá í tæpt ár, Rúnar Már Sigurjónsson fór í aðgerð og Emil Hallfreðsson er meiddur. Allir byrjuðu síðasta landsleik gegn Sviss.
Þá er Jón Daði Böðvarsson frá en hann er með brotið bein í baki. Birkir Bjarnason er að glíma við smávæileg meiðsli en ætti að ná heilsu innan tíðar.
„Meiðslin hjá Hólmari eru skelfileg tíðindi. Maður finnur til með honum og við veitum honum þann stuðning sem við getum. Það tekur langan tíma að koma til baka eftir þetta.“ Rúnar Már hefur ekkert spilað síðan gegn Sviss í síðasta mánuði og þurfti hann að fara í aðgerð. „Rúnar er búinn að vera með eymsli og eftir síðustu landsleiki sagði líkaminn stopp. Hann þurfti að fara strax í aðgerð. Rúnar verður kominn aftur í desember, sennilega,“ sagði Freyr Alexanderson, aðstoðarþjálfari liðsins við Mbl.is.
Komið er meira en ár síðan að íslenska liðið vann leik en Aron Einar Gunnarsson mun snúa aftur, hópurinn fyrir verkefnð verður kynntur á föstudag.