Neil Warnock stjóri Cardiff á von á því að Aron Einar Gunnarsson verði leikfær eftir tvær vikur.
Nú er að koma landsleikjahlé þar sem ekki er búist við að Aron Einar verði með íslenska landsliðinu.
Aron hefur ekkert splað á þessu tímabili en hann lék síðast á HM í Rússlandi.
Meiðsli hafa plagað þennan öfluga leikmann, hann hefur ekki getað hjálpað Cardiff í ensku úrvalsdeildinni.
,,Hann verður vonandi með gegn Fulham, það er ekki langt í hann,“ sagði Warnock en liðið heimsækir Tottenham á morgun.