Jose Mourinho stjóri Manchester United hefur útilokað að Zlatan Ibrahimovic snúi aftur til félagsins.
Manchester United á í vandræðum með sína fremstu menn en Romelu Lukaku er ískaldur.
Hann ásamt Anthony Martial, Marcus Rashford og Alexis Sanchez hafa bara skorað tíu mörk í ár.
Zlatan yfirgaf United fyrir ári síðan og gekk í raðir LA Galaxy, hann er ekki að snúa aftur.
,,Nei, nei,“ sagði Mourinho þegar hann var spurður hvort Zlatan kæmi aftur í janúar.