Liverpool hefur fengið frábær tíðindi en Alex Oxlade-Chamberlain miðjumaður liðsins er byrjaður að hlaupa.
Þessi öflugi spilari meiddist illa á hnéi í maí á síðustu leiktíð, bataferli hans hefur verið langt.
Langt er í að Oxlade-Chamberlain verði leikfær en hann er byrjaður að hlaupa á hlaupabretti þar sem hann notar ekki alla líkamsþyngdina.
Oxlade-Chamberlain kom til Liverpool sumarið 2017 og var að finna sig frábærlega þegar meiðlsin komu.
Oxlade-Chamberlain gæti hins vegar nýst Liverpool vel í ár ef bati hans heldur áfram að vera góður.
Sjáðu Oxlade-Chamberlain að hlaupa hér að neðan.