Alexis Sanchez sóknarmaður Manchester United kom til Englands í dag, sólarhring fyrir leik gegn Chelsea.
Það beið svakalegt ferðalag fyrir Sanchez eftir landsleik á miðvikudag þegar Síle vann Mexíkó.
Sanchez lenti í Lundúnum í morgun en hann skoraði sigurmark United gegn Newcastle í síðasta leik.
Hann mun lítið ná að æfa með liðsfélögum sínum fyrir leikinn gegn Chelsea á morgun.
Það er því talið að Marcus Rashford fái tækifæri í byrjunarliðinu en hann skoraði í sigri Englands í vikunni.