Mohamed Salah og Virgil van Dijk tóku báðir fullan þátt í æfingu Liverpool síðdegis í gær.
Báður hættu við að spila með landsliðum sínum vegna meiðsla, sem virðast ekki hafa verið alvarleg.
Báðir ættu að vera leikfærir fyrir leik liðsins gegn Huddersfield í ensku úrvalsdeildinni á morgun.
Naby Keita og Sadio Mane voru hins vegar ekki mættir á æfinguna enda meiddust þeir báðir með sínum landsliðum.
Þá virðist vera sem James Milner sé áfram frá vegna meiðsla.