Liverpool hefur staðfest að Sadio Mane hafi í dag gengist undir aðgerð vegna meiðsla á hendi.
Meiðslin urðu í landsliðsverkefni með Senegal en aðgerðin fór fram í Englandi.
Aðgerðin heppnaðist vel en ekki er talið líklegt að Mane verði lengi frá.
Meiðsli hafa verið að hrjá leikmenn Liverpool síðustu daga en Mohamed Salah, Virgil van Dijk og Naby Keita meiddust allir með landsliðum.
Jurgen Klopp og lærisveinar hans mæta Huddersfield um helgina þar sem liðið ætti að fara með sigur af hólmi.