Sadio Mane leikmaður Liverpool var fluttur á sjúkrahús í Senegal í gær vegna meiðsla á hendi.
Mane meiddist fyrir leik liðsins við Súdan og var fluttur beint á sjúkrahús.
Meiðslin eru á hendi og sést Mane með umbúðir um hönd sína.
Ekki er víst að Mane verði lengi frá enda virðast meiðslin ekki vera svo alvarleg.
Liverpool hefur fengið vond tíðindi í þessum landsleikjaglugga en bæði Mohamed Salah og Virgil van Dijk meiddust.