Enskir fjölmiðlar segja að bæði Mohamed Salah og Virgil van Dijk verði leikfærir þegar Liverpool mætir Huddersfield á laugardag.
Báðir ákváðau að draga sig út úr landsliðsverkefnum um helgina vegna meiðsla.
Salah ákvað að draga sig úr landsliði Egyptalands og er mættur til æfinga í Bítlaborginni.
Van Dijk spilaði með Hollandi gegn Þýskalandi en meiðsli urðu til þess að hann verður ekki með gegn Belgíu í kvöld.
Báðir aðilar verða hins vegar leikfærir á laugardag þegar Liverpool mætir Huddersfield.