Gylfi Þór Sigurðsson átti frábæran leik fyrir Everton í dag er liðið mætti Leicester í ensku úrvalsdeildinni.
Gylfi skoraði sigurmark Everton í 2-1 sigri en hann átti frábært skot fyrir utan teig sem hafnaði í netinu.
Íslenski landsliðsmaðurinn fær háa einkunn fyrir sína frammistöðu í dag og var valinn maður leiksins með níu.
,,Það fór allt það góða í gegnum Gylfa þegar Everton sótti og hann toppaði frammistöðuna með stórkostlegu marki í síðari hálfleik,“ er skrifað um Gylfa.
Gylfi hefur verið einn allra besti leikmaður Everton undanfarið og er tilnefndur sem leikmaður mánaðarins.
Koma Marco Silva til Everton virðist gera góða hluti fyrir okkar mann sem þótti ekki standa undir væntingum á sínu fyrsta tímabili.