Líklegast er að Jose Mourinho verði atvinnulaus á sunnudag ef Manchester United vinnur ekki Newcastle á laugardag.
Ensk blöð segja frá en þar er sagt að Mourinho hafi gert stjórnarmenn félagsins pirraða.
Það er ekki gengið innan vallar sem fer mest í taugar stjórnar félagsins, heldur hegðun hans utan vallar.
Þeir telja að Mourinho sé að fara á taugum, tímabilið sé ekki langt komið og því ekki ástæða til, að þeirra mati.
Mourinho virðist hafa tapað klefanum hjá United sem veldur því að félagið skoðar það nú að reka hann.