Arsene Wenger stjóri Arsenal treystir sér ekki til að lofa því að Alexis Sanchez klári tímabilið með félaginu.
Sanchez verður samningslaus í sumar og ekki eru nein merki á lofti um að hann geri nýjan samning við félagið.
Sóknarmaðurinn knái er sterklega orðaður við Manchester City sem gæti reynt að kaupa hann í sumar.
,,Ég á ekki von á neinu, ég er að einbeita mér að leikunum,“ sagði Wenger.
,,Þegar eitthvað gerist, þá svarar maður fyrir það. Þessa stundina er ekkert í gangi.“
,,Ég hef ekkert að bæta við það sem ég haf sagt áður, það sem mestu máli skiptir er að vera heilindi í störfum sínum. Spila vel sama hvaða aðstæður eru.“