Nottingham Forest tók á móti Arsenal í 3. umferð FA-bikarsins um helgina en leiknum lauk með 4-2 sigri heimamanna.
Arsenal er því úr leik í keppninni í ár en Eric Lichaj skoraði tvívegis í leiknum og átti stóran þátt í því að liðið fór áfram í 32-liða úrslitin.
Til þess að nudda salti í sárin ákvað hann að skíra hundinn sinn Gunner en hann er franskur bolabítur.
Hann setti inn færslu á Twitter í kvöld þar sem hann tilkynnti þetta en hún hefur vakið mikla athygli.
Færsluna má sjá hér fyrir neðan.
Wanted to show everyone the newest member of the Lichaj family…. Gunner. Thank you everyone for for pushing @KatPerko in the right direction! #erichasadog pic.twitter.com/SoTKiYiVMR
— Eric Lichaj (@EricLichaj) January 9, 2018