U23 ára lið Aston Villa tók á móti U23 ára liði Fulham í kvöld en leiknum lauk með 3-1 sigri gestanna.
Aston Villa komst yfir í leiknum áður en Jón Dagur Þorsteinsson jafnaði metin fyrir Fulham í upphafi síðari hálfleiks.
Jón Dagur var í byrjunarliði gestanna í kvöld og spilaði allan leikinn á kantinum.
Liðið er í fimmta sæti deildarinnar með 22 stig, 4 stigum frá toppliði Middlesbrough.