Philippe Coutinho leikmaður Barcelona þarf ekki að byrja á því að búa á hóteli í borginni.
Luis Suarez fyrrum samherji hans frá Liverpool hefur nú þegar græjað hús fyrir hann.
Suarez hafði tekið húsið frá fyrir Coutinho áður en Barcelona samdi um kaupverðið við Liverpool.
Þeir félagar eru miklir vinir og nú mun Coutinho búa í næsta nágreni við Suarez.
Josep Maria Bartomeu forseti Barcelona ætlaði að fara bóka hótelherbergi fyrir Coutinho þegar Suarez lét hann vita.
,,Forseti, það er ekki þörf á hóteli. Ég er með hús klárt fyrir hann,“ sagði Suarez.