Philippe Coutinho gekk formlega til liðs við Barcelona í dag.
Hann kemur til félagsins frá Liverpool en spænska félagið borgar í kringum 142 milljónir punda fyrir Coutinho.
Yfirmaður íþróttamála hjá Barcelona segir að Liverpool hafi lækkað verðmiðann á leikmanninum í aðdraganda félagaskiptanna.
„Við vildum alltaf kaupa leikmanninn. Það sem hefur breyst, frá því í sumar en verðmiðinn á honum en Liverpool var tilbúið að lækka sig talsvert,“ sagði Jordi Mestre.
„Af virðingu við Liverpool munum við ekki gefa upp kaupverðið, það var ósk enska félagsins en þeir lækkuðu sig talsvert frá því í sumar.“
„Ef ég segi nákvæma tölu er ég að brjóta samkomulagið sem við gerðum við Liverpool og það kemur sér ekki vel fyrir okkur en ég mun ekki tjá mig meira um verðmiðann,“ sagði hann að lokum.