Stórliðið, Leeds er úr leik í enska bikarnum eftir að hafa heimsótt Newport í dag.
Gestirnir frá Leeds komust yfir með marki frá Gaetano Berardi á níundu mínútu leiksins.
Þegar fjórtán mínútur voru eftir af leiknum varð Conor Shaughnessy fyrir því óláni að skora sjálfsmark.
Við það fengu heimamenn sjálfstraust og það var Shawn McCoulsky sem skoraði sigurmarkið á síðustu mínútu í venjulegum leiktíma.
Newport leikur í fjórðu efstu deild Englands en Leeds er í næst efstu deild.