Ross Barkley er gengin til liðs við Chelsea en þetta var tilkynnt fyrir helgi
Hann kemur til félagsins frá Everton og er kaupverðið talið vera í kringum 15 milljónir punda.
Barkley skrifar undir fimm og hálfs árs samning við Chelsea sem gildir til ársins 2023.
Litlu munaði að leikmaðurinn gengi til liðs við Chelsea í sumar en hann hætti sjálfur við vegna meiðsla.
Barkley æfði í fyrsta sinn í dag en var þó einn á æfingu. Myndir af því eru hér að neðan.