Barcelona byrjar nýtt ár með fínum sigri í La Liga en liðið hefur örugga forystu í deildinni.
Lionel Messi var að leika sinn 400 deildarleik fyrir Börsunga og hann hélt upp á það með marki.
Messi skoraði fyrsta mark leiksins í 3-0 sigri á Levante.
Luis Suarez bætti svo við öðru marki og Paulinho bætti svo við þriðja markinu undir ok leiks.
Börsungar eru að fá góðan liðsstyrk því Philippe Coutinho mun formlega ganga í raðir félagsins á morgun.